La musica

March 9th, 2009

Ég hef alltaf haft gaman af því að hlusta á tónlist.  Tónlistarsmekkur minn hefur einnig breyst mikið síðan ég byrjaði að spá og stúdera músík á síðastliðnum árum.  En ég uppgötvaði tvær skemmtilegar hljómsveitir eftir að ég skoðaði topp 10 listann hans Árna fyrir árið 2008. Read more…

admin tónlist

Þorrabjórarnir 2009

March 3rd, 2009

Og boltinn heldur áfram að rúlla, núna ætla ég að segja aðeins frá þorrabjórunum 2009 hérna á Fróni.

Read more…

admin bjór

Jólabjórar 2008

February 27th, 2009

Þar sem að Árni reif sig upp og birti dóma um jólabjórana 2008 þá ákvað ég að gera hið sama. Read more…

admin bjór, ferðalög

Uppfærði bloggið

January 20th, 2009

Ekki svo sem merkilegt en ég uppfærði bloggið mitt úr Wordpress 2.1 yfir í Wordpress 2.7. Þegar ég náði góðu sambandi við bauluna hjá Pjús þá gekk uppfærslan eins og í lygasögu. Spurning hvort að maður finni eitthvað fínt útlit á síðuna?

admin hitt og þetta, tölvur og tækni

Nú árið er liðið

January 3rd, 2009

í aldanna skaut.  Það var heldur betur viðburðaríkt og mjög svo skemmtilegt.  Hér fylgir smá samantekt af því sem að ég gerði á liðnu ári. Read more…

admin samantekt

Simon Kvamm

October 26th, 2008

Þetta blog er tileinkað fjöllistamanninum Simon Kvamm sem er söngvari og forsprakki hljómsveitarinnar Nephew samhliða því að vera einn þriðji skemmtiþáttarins Angora by Night.  Ég rakst á hann í skemmtiþættinum á satire föstudagskvöldunum á DR2, þar sem að menn eins og Wulff og Morgenthaler voru líka með þætti.  Svo komst ég að því seinna að hann var líka söngvarinn í sveitinni Nephew en átti samt erfitt með að trúa því, var viss um að þetta væru 2 ólíkir aðilar en svo reyndist ekki vera.
Read more…

admin danmörk, tónlist

11111 = 31 árs í dag

October 21st, 2008

Ég varð 31 árs í dag.  Varð ekki var við miklar breytingar og held að aldur sé bara afstætt hugtak, kalt mat.

En dagurinn í dag var góður, eins og þeir eru flestir þessa dagana.  Gaf vinnufélögum mínum köku í morgun, borðaði svo hvítlauks- og rósmarín marinerað lambakjöt í kvöld og endaði kvöldið á North Bridge Extreme og ostum.  Þvílík snilld.  NB Extreme er sannkölluð humlasprengja, ákaflega bitur enda um double IPA að ræða.  Maður þarf ekkert meira en eina flösku af þessum og hann á vel við á köldum vetrardögum eins og í dag.

Það er vissulega rólegra yfir manni miðað við í fyrra en þá hélt ég heljarinnar 30 ára partý með fussball og úrvalsöli, það var gott fjör.

Læt þetta nægja í bili en næsta blogg verður um multitalentið Simon Kvam, ég er búinn að fresta því alltof lengi að skrifa um hann, spennandi.

admin hitt og þetta

Bjór

October 13th, 2008

Ég ákvað í þetta sinn að hafa bara einfaldan titil á þessari blogfærslu, hún er tileinkuð bjór, öli, mjöði eða hvað sem menn vilja kalla hinn göruga drykk sem að hefur fært okkur margar ástæður til að gleðjast í gegnum tíðina.  Þessi færsla er að sjálfsögðu mjög smituð af minni persónulegri skoðun á bjór og ég bið ykkur að virða það. Read more…

admin bjór

Tengdur

August 15th, 2008

Jæja þetta hafðist.  Kominn með svona tengingu við internetið heima.  Það er nú ekkert lítið mál að redda sér einu slíku hérna á Djöflaeyjunni.  Það þarf að aftengja gamla númerið hjá Vodafone, ítreka það 3-4 sinnum, fá heimanúmer hjá Tali, fá staðfestingu um að allt sé klárt hjá Tali og tengja router, router virkar ekki, hringdi 1-2 sinnum á dag í Tal í c.a. viku og komst svo að því í dag að notendanafnið og lykilorðið sem að var sett í routerinn passaði ekki við það sem að Tal var með á skrá hjá sér. Lagfærði það og allt í stórgóðum málum.  Ef að Tal hefði sett rétt notendanafn og lykilorð inn í routerinn í upphafi þá hefði ég verið tengdur fyrir 1 viku síðan og hefði ekki þurft að hringja 10 sinnum í þjónustuver Tals.  Samt frekar fyndið að þegar ég var búinn að hóta öllu illu þá gekk þetta.  Líka pínu fyndið að það er ekki frítt að hringja í þjónustuver Tals?  Þetta er að sjálfsögðu málið.  Bjóða upp á lægsta mínútugjaldið á landinu, en rukka fyrir símtöl í þjónstuverið, senda út router með vitlausa uppsetningu, svo þegar að viðkomandi er búinn að hringja 10 sinnum og orðinn öskuillur rísa þá upp úr ruglinu og redda málunum.  Minnir mig á RyanAir, skítódýr flugfargjöld en rukka himinháar upphæðir fyrir yfirvigt, lenda á litlum flugvöllum fyrir utan áfangastaðina og rukka fyrir rútuferð í bæinn, selja allskonar varning um borð, o.s.frv.

Og ég hélt að svona mál væru svo einföld hérna á Fróni en ofurflókin í Danmörku.  Sannleikurinn er hinsvegar sá að það tók okkur nokkra daga að detta á netið í Danaveldi en hérna gekk það ekki beint vel.  Við skiptum reyndar við TDC í Danmörku, spurning hvað hefði gerst ef við hefðum snúið okkur beint til Símans?  Veit ekki.

En jæja, ég er a.m.k. kominn á lýðnetið og svo er bara að sjá hvort að draslið virki almennilega.

admin hitt og þetta, tölvur og tækni

Kvaa, kemurðu honum ekki undir 4?

July 15th, 2008

Ég fór til Húsavíkur í dag, sem er e.t.v. ekki í frásögur færandi, nema fyrir þær sakir að í bílnum hennar mömmu er eyðslumælir sem að uppfærist á meðan maður ekur.  Ef að maður lendir í þeirri óheppilegu aðstöðu að lenda á eftir hægfara bíl og neyðist til að taka framúr honum þá rýkur eyðslumælirinn upp og maður sér hundraðkallana fjúka út um gluggann.  Við hjónaleysin vorum því sammála um að töffarar nútímans eru ekki að metast um það hversu hratt þeir geta ekið heldur hversu litlu bensíni þeir geta eytt.  Þá datt okkur í hug gamla auglýsingin með töffurunum tveimur þar sem þeir eru að metast og annar segir við hinn, “kvaa, kemurðu honum ekki í hundrað”, þá segir hinn “auðvitað kem ég honum í hundrað” og stígur bensínið í botn.  Þeir enda að sjálfsögðu á því að klessukeyra bílinn.  En í kreppunni sem að ríður yfir okkur í dag væri hægt að yfirfæra auglýsinguna á titilinn á þessari færslu.  “Auðvitað kem ég honum undir 4, þetta er hybrid maður”

admin hitt og þetta